Mér barst þessi frábæra uppskrift frá Tuttatis þetta getur hann strákurinn:)
Þú tekur einn pakka af venjulegu cheeriosi, opnar hann, gramsar vel og
vandlega oní honum til að vita hvort eitthvað stórhættulegt leikfang sé
ofaní (lífshættulegt ef gleypt er). Þegar það er búið nærðu í disk úr
diskaskápnum... ef hann er tómur eins og hjá mér þá gramsarðu ofarlega í
stóru uppvaskshrúguna í baðkarinu og finnur þar djúpan disk. Ath það er
mjög mikilvægt að diskurinn sé djúpur eins og skýrist seinna meir. Þú
setur diskinn á baðvigtina þína og hellir úr cheerios pakkanum nákvæmlega
100 g af hringjum. Síðan ferðu í ísskápinn tekur út mjólkurfernu og þefar
af henni. Ferð inná bað og ælir og hellir síðan úr fernunni í vaskinn.
Gramsar í ísskápnum og af því að þú finnur enga fernu sem ekki er komin 2
mán fram yfir tíma þá hleypurðu upp til Siggu á efri hæðinni og færð lánaðan
hjá henni mjólkurpott (lofar náttla að skila honum um leið og hinum 60 l
sem þú varst búinn að fá lánaða áður). Þegar þú kemur aftur niður
til þín opnarðu mjólkurfernuna og mælir út 1 dl af mjólk. Þurrkar vel og
vandlega upp það sem þú sullar útfyrir og hellir mjólkinni réttsælis
yfir cheeriosið. Ath það er mjög mikilvægt að hella þessu réttsælis svo
að cheeriosið fari ekki öfugt niður. Þarna kemur sko aðaltrykkið eins og
ég benti á og er margoft búinn að brenna mig á, ÞAÐ VERÐUR AÐ VERA DJÚPUR
DISKUR annars flæðir mjólkin útaf diskinum. Að þessu loknu dregurðu fram
stofusófann og leitar vel og vandlega í rykinu þar til þú finnur gamla skeið
sem er búin að liggja þar síðan þú eldaðir cheerios síðast ('62). Þurrkar
þetta græna af skeiðinni og sest með DJÚPA diskinn með réttinum í og borðar.
Fyrir þá sem eru lengra komnir í eldamennskunni og jafnvel húsmæðraskólagengnir
hef ég heyrt að sniðugt sé að sáldra 2 tsk af sykri yfir réttinn (réttsælis
að sjálfsögðu) en ég hef því miður ekki lagt í að prófa það ennþá.
Einnig má til hátíðarbrigða elda honní nött cheerios en þá notar maður
pakka af honní nött cheeriosi í staðinn. Það er heldur erfiðara þar sem
honní nöttið á það til að festast saman og getur gert erfiðara að hella
úr pakkanum nákvæmlega 100g.
Verði þér að góðu